Siglingar

Boðið er upp á náttúruskoðunarferðir (fuglar, selir, hvalir og lundar) og reglulegar ferðir út í Grímsey með leiðsögumanni. Þessar ferðir hefjast 15. júní og standa fram í miðjan ágúst eða eins og veður leyfa.
Reglulegar siglingar út í Grímsey
Fastar ferðir eru tvisvar í viku með leiðsögn, á fimmtudögum og sunnudögum. Lagt er af stað kl 14 og tekur ferðin um 4 klst.
Verð:
12 ára og eldri: 5000 kr.
6 ára til 12 ára: 2500 kr.
Frítt fyrir 6 ára og yngri.
Morgunsiglingar út í Grímsey
Ef veður og þátttaka leyfir er boðið upp á morgunsiglingar milli 9 og 12 út í Grímsey. Stoppað er í eyjunni í 1 til 2 klst og síðan siglt í kringum eyjuna. Þessar ferðir hefjast 15. júní og standa fram í miðjan ágúst eða eins og veður leyfa.
Verð:
12 ára og eldri: 5000 kr.
6 ára til 12 ára: 2500 kr.
Frítt fyrir 6 ára og yngri.
Náttúruskoðun
Náttúruskoðunarferðir er hægt að fá eftir pöntunum. Þá er siglt um Steingrímsfjörð og í kringum Grímsey og skoðaðir fuglarnir, lundar, selir og hvalir ef þeir verða á vegi skipsins.
Verð og annað er eftir samkomulagi og hægt er að fá upplýsingar í síma 451 3238 eða 899 4238.
