föstudagur
júl.172009
Bryggjuhátíðin á Drangsnesi
föstudagur, júlí 17, 2009 at 11:36AM Laugardaginn 18. júlí verður hin árlega Bryggjuhátíð haldin á Drangsnesi. Að því tilefni verður ýmislegt á döfinni á Malarkaffi.
Þeir Sjonni Brink og Jógvan verða að spila á Malarkaffi föstudags- og laugardagskvöld frá kl 23:00 til 3:00. Aðgangseyrir er 1500 kr. KL 15 á laugardaginn spila þeir síðan á planinu við Malarkaffi fyrir gesti og gangandi.
Þá verða bátsferðir með Sundhana út í Grímsey á laugardaginn frá kl 11:00 til kl 15:30 frá bryggjunni á Drangsnesi. Það kostar 1500 kr. í ferðina fyrir fullorðna, en 50% afsláttur fyrir 6 til 12 ára og frítt fyrir yngri en 6 ára.
