þriðjudagur
jún.022009
Sjómannadagurinn á Malarkaffi
þriðjudagur, júní 2, 2009 at 6:56PM Sjómannadagurinn verður haldinn á Malarkaffi með hátíðarbrag laugardaginn 7. júni.
Boðið verður upp á 3ja rétta máltíð. Í forrétt er marineraður skötuselur á salatbeði. Aðalréttur grillsteiktur lambainnanlærisvöðvi á villibráðarsósu og eftirréttur er ostakaka að hætti hússins m/serrý og kaffi. Verð á máltíð eru 4.800 kr. á mann. Veislan hefst kl. 20:00 húsið opnar fyrir matargestum kl 19:00. Borðapantanir eru í síma 618 4872.
Trúbadorinn Sjonni Brink heldur uppi stuði ásamt leynigesti frá kl 11:30 til 03:00. Aðgangsverð er 1500 kr. inn á þessa frábæru snillinga. Húsið opnar fyrir almenning kl 11:00. Bjórtilboð 1/2 L á kr.500. Hægt er að fá gistingu á Malarhorni.
Ekki missa af þessum frábæra atburði.
